Alkynhneigð
Alkynhneigð eða "Pansexuality" er opinberlega skilgreind kynhneigð.
Alkynhneigð er skilgreind sem svo, „kynferðisleg aðlögun, kynhvöt eða ást gagnvart mannveru, óháð auðkenndu eða líkamlegu kyni“ eða „kynhneigð sem takmarkast hvorki né hindrast í kynferðislegu vali óháð kyni eða virkni“. Þeir sem eru „alkynhneigðir“ lýsa kynhneigðinni sem kynblindni. Þetta þýðir í raun að manneskja aðlaðast frekar að persónuleika annarra eða aðgerðum í stað kyns eða kynímynda. Þeir flokkast til alkynhneigðra sem laðast að; „cisgender“ en það eru þeir sem líta á sjálfan sig í réttu kyni, „transsexual“ en það eru þeir sem telja sig vera í vitlausum líkama, „intersex“ það kallast á íslensku að vera tvíkynja, „androgynyen“ en það er betur þekkt sem „drag-fólk“. Drag-fólk eru þeir sem kunna betur við sig í persónueinkennum hins kynsins án þess endilega að líta á sig sem hitt kynið líffræðilega. Þá skal taka fram að þeir sem laðast að dýrum, börnum, líkum o.fl afbrigðilegum hlutum teljast ekki til alkynhneigðar.
Orðið „pan“ kemur úr forn grísku og þýðir „allt“ eða „allir“. Hugtakið „pansexualism“ er kenning sem er fyrst rakin til ársins 1917 en Sigmund Freud er talinn hafa fyrst skilgreint kenninguna. Skilgreining Freuds hljómar svo „kynhvötin stjórnar stærstum hluta af aðgerðum manna, hvort sem huglægum eða hlutlægum.“ Þó má ekki rugla saman pan-sexuality sem er kynhneigðin slík og pansexualism sem er kenning Freuds um kynhvatareðlið.